Instruksjoner
        
             
            
                    
                
                  
                            
    
                                
Leiðbeiningar fyrir að setja upp og horfa á Discovery+ ...
           
                              
                                
                              
                   
                          
                                
                                
            - Apple tæki (Apple TV/iPhone/iPad) með iTunes inneign
- 
                                        Hér er greitt fyrir Discovery+ áskriftina með iTunes inneign.
 
 Áður en þú byrjar
 - Settu upp áskrift á PlaymoTV (eða VPN þjónustu að eigin vali) ef þú hefur ekki gert það núþegar á Mac/PC vél. Þessi þjónusta fjarlægir þá takmörkun að Discovery+ sé aðeins fyrir notendur i Bandaríkjunum.
- Settu inn DNS stillingar í Apple tækið samkvæmt leiðbeiningum PlaymoTV eða þeirri VPN þjónustu sem þú ert hjá.
 
 Setja upp Discovery+ á iTunes
 - Til að byrja með þarftu að hafa iTunes / App Store reikninginn þinn stilltan á Bandaríkin og hafa næga iTunes inneign (sem fæst hjá okkur í formi iTunes inneignarkóða) á þeim reikningi til að borga fyrir Discovery+ áskrift; Leiðbeiningar við hvernig eigi að innleysa iTunes inneignarkort.
- Sæktu Discovery+ appið á Apple/iOS tækinu þínu frá AppStore.
- Opnaðu appið og veldu "Start Your Free Trial"
- Það er möguleiki að Discovery+ biðji þig um að fara á vefsíðu til að klára ferlið.
- Kláraðu að stofna Discovery+ reikning og fylgdu leiðbeiningunum sem birtast á skjánum. Nú ætti Discovery+ aðgangurinn að vera tilbúinn.
 
 Að reynslutímanum liðnum verður áskriftin gjaldfærð af iTunes reikningnum þínum mánaðarlega. Þú getur stjórnað áskriftinni í iTunes Store, undir liðnum Account og Manage Subscriptions.
 Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum ef þú vilt stöðva áskriftina um óákveðinn tíma:
 - Opnaðu iTunes á tölvunni þinni og veldu síðan iTunes Store.
- Smelltu á netfangið þitt ofarlega vinstra megin í iTunes forritinu og veldu Account.
- Sláðu inn lykilorðið þitt í gluggann sem birtist.
- Nú birtist síða með upplýsingum um iTunes aðganginn þinn. Flettu neðst, að liðnum „Subscriptions“ og veldu Manage.
- Hér getur þú gert Discovery+ áskriftina þína óvirka. Ef þú vilt gera hana virka aftur, er það gert á sama stað og hún er gerð óvirk, eða á Apple TV.
 

